Ef þið hafið áhuga á að styrkja þessi verkenfni, þá vinsamlegast greiðið inn á reikning:

Hugmyndaflug ehf.
Háaleitisbraut 39
108 Reykjavík.
Kt. 611085 - 0529 Bankareikningur:
   0101 – 26 – 101717.

Áætlunin “Örkin”


Örkin komin á sinn stað á hvolfi fyrir sunnan Kárahnjúka
Nú er búið að loka hjárennslisgöngum undir Kárahnjúkastíflu og láta Jöklu, aurugasta fljót landsins, byrja að fylla Hjalladal fyrir innan stífluna upp með vatni og leðju, sem um síðir mun fylla dalinn. Stöðu þessa máls má sjá í "Nýjast að frétta" frá 8. október.

Markmið áætlunarinnar “Örkin” er að fjalla eins vel og kostur er um þennan einstaka atburð og langafdrifaríkasta þátt stærstu framkvæmdar Íslandssögunnar.


Áætlunin felst í eftirfarandi:

  • Tveimur dögum fyrir lokun hjárennslisganganna hefjist kvikmyndataka Hugmyndaflugs ehf á virkjunarsvæðinu og yrðu myndir teknar og sendar út á sérstakri vefsíðu Hugmyndaflugs daglega þar til lónið verður fullmyndað. Notuð yrðu þrenn samgöngutæki, lítill Suzuki Fox jeppi, flugvélin TF-FRÚ og skipið “Örkin”, sem er þriggja tonna, tuttugu feta Sómabátur.
  • Bíllinn og flugvélin yrðu notuð til myndatöku á öllu áhrifasvæði virkjunarinnar í byggð og óbyggð, allt frá Brúarjökli til Reyðarfjarðar.
  • Flugvélinni er hægt að lenda á fjórum stöðum í nágrenni Kárahnjúkastíflu.
  • Örkin yrði notuð til siglingar um lónið eftir því sem þörf krefði til kvikmyndatöku.

Smellilð á myndina til að sjá hana stærri
Fyrir sunnan Kárahnjúka
Kvikmyndaefnið yrði notað til daglegrar úrvinnslu fyrir vefsíðuna sem allir þeir hefðu aðgang að sem kynna vildu sér það sem fram fer meðan Örkin siglir.

Eftir á er hugsanlega hægt að nota kvik- myndaefnið til gerðar heimildarmyndar.

Hafist hefur verið handa við að fram- kvæma þessa áætlun og eftirfarandi hefur verið gert:

  • Fengin ADSL-tenging og opnuð vefsíða Hugmyndaflugs ehf.
  • Opnuð netföngin omar@hugmyndaflug.is og hugmyndaflug@hugmyndaflug.is.
  • Í apríl var farið með lítinn Daihatsu Feroza jeppa frá Reykjavík austur að Kárahnjúkastíflu og þaðan var honum ekið á snjó, ís og hjarni inn í fylgd nokkurra jöklajeppa inn á svonefndan Hraukahjalla í Kringilsárrana og hann skilinn þar eftir.
  • Jeppinn verður notaður til að valta lendingarbraut fyrir flugvél á hjallanum, sem verður með því síðasta sem sökkt verður í dalnum.
  • Keyptur var sómabáturinn “Örkin” og hann dreginn á vagni frá Hafnarfirði upp fyrir Kárahnjúka með leyfi landeigenda, en þar var farið með hann í leiðangri þriggja jöklajeppa á snjó og hjarni niður á bakka Jöklu þar sem Hjalladalur er einna dýpstur. Þar var hann festur niður og skilinn eftir þar sem hann verður tiltækur síðsumars.

Áætlunin “Örkin”

Þetta verkefni verður kostnaðarsamt og á eftir að kosta margra mánaða vinnu.

Smellilð á myndina til að sjá hana stærri
Örkin á bakka Jöklu þar sem Hjalladalur er einna dýpstur
Fram til þessa hefur það eingöngu verið kostað af mér undirrituðum og er kostn- aður þegar orðinn um 850 þúsund krónur.

Ég tel það mjög mikilvægt fyrir íslenska og alþjóðlega fjölmiðlun að hægt verði að framkvæma þessa áætlun en hún er þegar orðin mér þung í skauti fjárhagslega því að á kvikmyndagerð Hugmyndaflugs ehf er margra milljóna króna halli. Ef einhver telur þessa áætlun þess virði að styðja hana er allur stuðningur þeginn með djúpri þökk.

9. maí 2006.
Ómar Þ. Ragnarsson

Ófnir vefsíðugerð  - sími 588-6100
Fara til baka á forsíðu