|
Heimildarkvikmyndin “Katla og Grímsvötn kallast á”
Hún verður um allt svæðið milli þessara tveggja náttúrufyrirbæra, þ. e. milli Mýrdalsjökuls og Vatnajökuls, sem bæði er einstætt frá náttúrufarslegu sjónarmiði en býr líka yfir öflugasta jarðhitasvæði landsins og möguleikum til jarðvarma- og vatnsaflsvirkjana sem gerir það að mjög eftirsóknarverðum kosti fyrir orkuöflun fyrir stóriðju. Búið er að fara margar ferðir á landi og í lofti um svæðið, einkum að vetrarlagi, en gríðarlega mikil vinna er óunnin í gerð þessarar myndar.
|