Áætlunin “Íslands þúsund ár”

7. október 2006:   Í kjölfar þess að eigandi í Hugmyndaflugi ehf. (hugmyndaflug.is) hefur opinberað skoðanir sínar á umdeildum þjóðmálum undir heitinu “Íslands þúsund ár” verður þessi dálkur helgaður þessum viðhorfum. Önnur viðfangsefni Hugmyndaflugs ehf verða áfram unnin á þeim faglegu for- sendum, sem lagðar eru í blaðamennsku, og verða algerlega óháð skoðunum eigandans á einstökum þjóðmálum.

Efnið “Íslands þúsund ár” skýrist best af efni áttblöðungs sem borinn var út með Morgunblaðinu 24. september og af ávarpi sem flutt var á útifundi á Austurvelli 26. september. Hér eftir verður efni undir yfirskriftinni “Íslands þúsund ár” kynnt í fyrstu persónu sem beint samband mitt við lesandann.

Ég er enn að átta mig á hinni stórkostlegu þátttöku í Jökulsárgöngunni sem snart mig djúpt og ég er afar þakklátur fyrir. Málefnið er svo stórt, - það varðar milljónir ófæddra Íslendinga, - að við, hvert og eitt, sem tókum þátt í þessum atburði, erum aðeins dropar eða sandkorn í saman- burðinum. En við sýndum að ef nógu margir dropar og sandkorn koma saman geta þau orðið að stórfljóti sem flæðir yfir hindranir. Það var ómetanlegt fordæmi fyrir framtíðina.


29. maí 2006:   Í tengslum við önnur verkefni Hugmyndaflugs ehf. hefur verið unnið með nokkrum samstarfs- mönnum um alllangt skeið að óvenjulegu verkefni, sem fengið hefur vinnuheiti með undirtitlinum “Íslands þúsund ár”.

Ýmsar forsendur og aðstæður þurfa að vera fyrir hendi til þess að hægt verði að hrinda þessu verkefni í framkvæmd og kemur ekki í ljós fyrr en á reynir hvort það verður að veruleika eða ekki. Þess vegna er ekki tímabært að upplýsa meira um það að sinni.

Ófnir vefsíðugerð  - sími 588-6100
Fara til baka á forsíðu