![]() |
![]() |
![]() |
|||
|
|||||
![]() |
||||||||
|
Áætlunin “Fólk og fyrirbæri” Á vegum Hugmyndaflugs ehf er hafinn undirbúningur að úrvinnslu úr þeim sagnasjóði sem hefur safnast upp í kringum óvenjulegt lífshlaup eiganda Hugmyndaflugs ehf, þar sem við sögu kemur fólk í leikhúsum og á fjölmiðlum, stjórnmálamenn, tónlistarmenn, flugmenn, akstursíþróttamenn, menntaskólaárin, sérstætt fólk o.s.frv. Hugmyndin er að gera þetta á næsta óvenjulegan hátt sem verður nýjung hér á landi og þótt víðar væri leitað, - rituð ævisaga verður þar aðeins eitt atriði af mörgum. Vegna annarra tímafrekra og krefjandi verka á þessu ári verður þessu verkefni væntanlega ekki hrundið í framkvæmd fyrr en eftir næstu áramót og undirbúningur þess mun krefjast talsverðrar vinnu og kostnaðar. |
|
||||||