![]() |
![]() |
![]() |
|||
|
|||||
![]() |
|||||||||||
|
9. janúar 2007: Í hálfa öld hefur verið hamrað á því að við Íslendingar stundum sjálfbæra þróun og frábæra nýtingu á endurnýjanlegri og hreinni orku, nú síðast vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík, stækkunar álversins á Grundartanga og nýs álvers í Helguvík. Auk virkjana í Neðri-Þjórsá eru virkjanir á Hellisheiðarsvæðinu undirstaða undir þessum áformum. Í útvarpsþættinum Speglinum nýlega upplýsti virtur kunnáttumaður að út úr Nesjavalla-Hengilssvæðinu stæði til að kreista um það bil 600 megavatta orku þótt líkur hnigju að því að með svo mikilli aðgangshörku yrði svæðið orðið orkulaust eftir 40 ár og þyrfti þá áratuga hvíld til að ná hitanum upp á ný. Hvað þýðir þetta? Jú, eftir 40 ár þyrfti þá væntanlega að útvega 600 megavatta orku frá öðrum svæðum til þess að koma í staðinn. Svæðið dugar sem sé skemur til orkugjafar en skammlíf kolanámusvæði erlendis, sem réttilega eru sögð gefa óendurnýjanlega orku. ... meira
Hálendið norðan Vatnajökuls er að mestu leyti autt og einkum var áberandi hvað sá hluti lónstæðis Hálslóns, sem eftir á að sökkva, var snjóléttur, - enn ein vísbendingin um það hvers vegna það svæði hefur verið mikilvægasta burðarsvæði hreindýranna á vorin. ... lesa meira
25. desember 2006:
Nú er vefarinn að tæma myndavélarnar hans Ómars og hérna koma fyrstu myndirnar af þeim árangri og svo munu fleiri koma næstu daga. Smellið bara á Nýjustu myndir hérna hægra megin, þar sem við kynnum þegar nýjar myndir koma með dagsetningu .....
20. desember 2006: Nú hefur vefstjóri fengið fleiri myndir til að setja í myndasafnið og hann veit að menn eru að bíða eftir þeim, vegna þess að hemsóknir á vefinn eru alltaf mjög miklar þrátt fyrir að ekki hafi verið uppfært neitt í langan tíma. Á nýju ári verðum við líka að standa enn betur saman við verndun Jökulsánna í Skagafirði og gegn frekari virkjanahugmyndum á Suðurlandi. En við munum sem sagt halda áfram að setja myndir í safnið yfir hátíðarnar og fram á næsta ár. Við viljum þakka ykkur innlitið á vef Hugmyndaflugs um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs!
Á leiðinni á gamla Suzuki-jeppanum uppeftir lenti ég í slagtogi með sjúkrabílum og lögreglubíl sem kallaðir voru út vegna flugslyss við Kárahnjúka. ... meira
26. október 2006: Mánudag 23. október var farið í kvikmynda- og ljósmyndaflug yfir Brennisteinsfjöll en þar er hafið kapphlaup orkufyrirtækja um rannsóknaleyfi vegna virkjanaáforma. Þriðjudaginn 24. október var flogið á TF-FRÚ í kvikmynda- og ljósmyndatökuflug yfir Kárahnjúkasvæðið og lent á Hraukahjalla í Kringilsárrana á leiðinni til Egilsstaða. ... meira
Þegar þessir hjalla sökkva næstu daga verður það einhver mesta breytingin á Hjalladal sem gerist í drekkingu hans. ... meira
18. október 2006: Sunnudagurinn 15. október varð notadrjúgur við gerð myndarinnar um Örkina. Flogið var austur á flugbrautina við Snæfell þar sem Þórir Gíslason var mættur á ofurjeppanum “Hrolli” og við fórum niður á bakka Hálslóns til að draga Örkina á flot. Frábært veður var í þessum dýpsta og skjólsælasta dal norðurhálendisins og siglt um alla kima Hálslóns, sem er orðið næstum 15 kílómetra langt, nær upp meðfram Hraukahjalla og hefur sökkt hluta af Kringilsárrana. ... meira
Í kjölfar þess að eigandi í Hugmyndaflugi ehf. (hugmyndaflug.is) hefur opinberað skoðanir sínar á umdeildum þjóðmálum undir heitinu “Íslands þúsund ár” verður þessi dálkur helgaður þessum viðhorfum. Önnur viðfangsefni Hugmyndaflugs ehf verða áfram unnin á þeim faglegu for- sendum, sem lagðar eru í blaðamennsku, og verða algerlega óháð skoðunum eigandans á einstökum þjóðmálum. ... meira
This website is dedicated to the unique nature of Iceland which is in fact a world heritage that is the responsibility of the Icelandic people to preserve. The website is divided into two sections, - firstly the views and opinions of the TV-journalist Ómar Ragnarsson and secondly the different tasks and operations of Hugmyndaflug ehf. The Nature Forum • Photo Gallery • Contact and Request Form • E-mail us |
|
|||||||||